Laugardagur, 13. desember 2008
Allt í lagi....
Fyrir þá sem geta ekki kommentað (og aðra sem vilja fylgjast með):
ragnasteins.wordpress.com
Safari vill ekki leyfa mér að gera hlekk þannig að þið verðið bara að gera þetta handvirkt, eða copy/paste:
http://ragnasteins.wordpress.com
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 12. desember 2008
Hvað á að gera
Ég er mikið búin að hugsa hvað ég ætla að gera eftir áramót og það er eiginlega bara mjög erfitt að ákveða sig. Það sem er í boði:
- Fara til Ítalíu sem au pair fram í apríl. Ég hef fundið tvær fjölskyldur sem væri möguleiki að fara til, en þá náttúrulega þarf ég að hafa samband við ókunnuga, búa á heimili ókunnugra og sjá um krakka sem er mjög ólíklegt að ég skilji (fólkið fer samt fram á að au pair stelpan tali ensku við krakkana). Ég mun líka ekki fá mikinn pening (en ég fæ frítt fæði og húsnæði). Mig langar líka að vera heima um páskana en þeir eru snemma í apríl.
- Fara til Danmerkur í leit að vinnu. Ég gæti hugsanlega búið hjá Eddu til að byrja með en þyrfti helst að finna mér herbergi í bænum seinna meir. Svo líka sá ég ekkert rosa mikið af vinnum þegar ég skoðaði eitthvað aðeins þegar ég var í Köben.
- Vera heima og lifa á atvinnuleysisbótum. Ég gæti hugsanlega fundið eitthvað skítadjobb á endanum en mér finnst þetta ekki neitt voðalega spennandi kostur, en auðveldur.
- Sækja um í fjarnám frá HA (eina sem kemur til greina er grunnskólakennarafræði) en æji, mér finnst það ekki neitt voða spennó.
- Sækja um í staðnám í HA í sálfræði, það er alveg eitthvað sem ég hef áhuga á, eitthvað sem ég mun líklega gera næsta vetur (í HÍ), en þá þarf ég að finna mér húsnæði (og ætli maður þurfi ekki að borga eitthvað í leigu, sem ég á ekki alveg efni á í augnablikinu).
- Og fyrst maður er að pæla í staðnámi hvort eð er, afhverju ekki að pæla í að sækja um í sálfræði í HÍ? Þá þarf ég samt líka aftur að pæla í húsnæðismálum, sem yrði jafnvel enn dýrara en á Ak.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 7. desember 2008
Komdu um jólin - Gente di Mare
Jæja, ég er komin heim eftir erfiða ferð.
Eftir 9 vikur að heiman þá finnst mér samt eins og ég hafi verið bara ný farin. Ég hef ekki enn fundið fyrir þessari skrítnu tilfinningu sem ég fæ alltaf þegar ég kem heim frá útlöndum eins og ég sé búin að vera í burtu í marga mánuði og það sé endalaust nýtt í kringum mann. Mamma og pabbi eru samt búin að mála herbergið mitt og setja nýtt á gólfið og allt, samt finnst mér eins og ég hafi aldrei farið (mér líður jafnvel pínu eins og ég sé komin heim í jólafrí úr MA).
Ég er eitthvað svo sorgmædd yfir því að vera komin heim. Það er svo óralangt í jólin, því ég hef ekkert til að gera fyrir jól (jú, mamma ætlar að láta mig laga til, þau eru að taka húsið í gegn). Svo var ferðin eitthvað svo erfið og uppfull af pirringi. Auðvitað lenti ég í því að þurfa að borga fyrir 5 kíló af yfirvigt, 85 danskar krónur fyrir hvert kíló. Flugið var samt eiginlega mjög gott. Ég var ein með þrjú sæti, ég varð ekkert stressuð eða flughrædd og ég bara lagði mig á leiðinni. Svo þegar ég kom á Leifstöð þurfti ég fyrst að bíða eftir að Elko opnaði svo að ég gæti keypt myndavélina hans pabba. Þ.a.l. varð ég frekar sein að ná í töskuna mína og þess vegna labbaði ég ein í gegnum tollinn (oftast fer maður innan um margt fólk) og tollverðirnir ákváðu að skoða í pokana mína og vildu gegnumlýsa töskuna mína. Það eina sem þeir fundu var samt bara myndavélin, þannig að ég þurfti að borga toll af myndavélinni. Pirr pirr. Svo fór ég í hraðbanka til að athuga hvað ég ætti mikinn pening eftir, kom þá í ljós að ég átti 1000 krónur á kortinu mínu. Frábært. Þetta var eiginlega of mikið fyrir litlu mig þannig að ég var hálf grátandi þegar ég hringdi í pabba til að segja honum frá tollinum.
Svo þessa dagana fer ég í hringi að reyna að ákveða hvað ég ætla að gera eftir áramót. Það er samt nokkuð víst að ég verð ekki á Íslandi, það er ekkert fyrir mig að gera hér. Það verður annaðhvort au pair einhverstaðar í Evrópu (mig langar samt pínu til Ástralíu eða eitthvað, en það er örugglega of mikið vesen) eða fer aftur til DK og lifi á atvinnuleysisbótum þangað til að ég finn einhverja vinnu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 7. desember 2008
4. des 2008 - glatað
(Þessi færsla var skrifuð 4. des en af einhverjum ástæðum gat ég ekki sett hana inn)
Æji þetta er alveg glatað!
Um það leitið sem ég var að taka mig til fyrir,,heimsreisuna" hrundi efnahagslífið í vesturheimi og fór afskaplega illafyrir Íslendinga. Gjaldeyrir fór upp fyrir allar hellur og það var hálfgertsvartamarkaðsbrask að redda sér pundum (ja eða bara þó nokkrar ferðir íbankann). Þá samt var pundið í kringum 190 krónur. Við Inga létum þetta ekkistöðva okkur og héldum galvaskar af stað til óvinalandsins (því jú um þettaleiti gengu sögur um hræðilega Breta sem hræktu á eftir Íslendingum). Þráttfyrir að hafa stolið peningum Breta tóku þeir nú samt vel á móti okkur (ég varnú samt alveg tilbúin til að hreyta á móti að þeir hefðu stolið peningunummínum, því ég átti hlutabréf í Kaupþingi) og ekki var ég neitt voða vör viðkreppuna. Maður hefur alveg heyrt um að það sé allt svo dýrt í Bretlandi og þaðundir ,,venjulegum kringumstæðum," en mér fannst bara mest allt verafrekar viðráðanlegt í verði, kannski aðeins dýrara en heima en ekkert alveggífurlega.
Þegar pundið fór upp fyrir 200 krónur þá fór maður aðeinsað finna fyrir verðmuninum, tala nú ekki um þegar pundið fór svo upp fyrir 210krónum (og ég held að það hafi verið rétt tæpar 220 krónur undir lokin). Samttókst mér að kaupa jólagjafir á frekar góðu verði fyrir flesta og það var næstsíðasta daginn í Manchester.En við vorum á leiðinni heim þannig að maður var ekkert of mikið að hugsa út íhvað allt kostaði. Við notuðum gengið sem afsökun til að fara heim, þó svo aðþað var eiginlega ekki alveg aðal ástæðan. Við komum til DK þar sem við fundum enn meirafyrir gengiskreppunni. Það bjargaði okkur eiginlega að pundið var líka íalgjöru lágmarki gagnvart dollaranum. Þegar við komum til Danmerkur var pundið217 krónur og danska krónan var rúmar 24 krónur.
Á morgun flýg ég heim. Í gær tókég eftir því að krónan var að styrkjast. Í dag sá ég að danska krónan er 21króna, pundið er 185 krónur, 5 krónum ódýrara en áður en við lögðum af stað!Núna verður pottþétt aftur ódýrara að lifa af í útlöndum heldur en heima. Égget svo svarið það, þetta er bara út af því að ég vildi gera eitthvaðskemmtilegt, leika mér í útlöndum og sjá heiminn. Reyndar gæti þetta líka veriðIngu að kenna, því að krónan er jú að lækka EFTIR að hún er farin heim...
Svo er fólk að tala um að fækkajólagjöfum út af kreppunni, fólk á mínum aldri ætlar hreinlega að sleppa því aðkaupa jólagjafir og pabbi sagði mér (eftir að ég var búin að kaupa allarjólagjafirnar) að ég ætti bara að sleppa því. Ég verð samt að segja að ég áaðeins meiri pening þessa dagana heldur en um þetta leiti síðustu fjögur ár,þannig að ég sé ekki eftir því að kaupa jólagjafir handa mínum nánustu.Ég verðlíka ekkert sár ef einhver þarna úti týmir ekki að kaupa jólagjöf handa mér,það er jú kreppa. Sendið bara jólakort í staðin :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4. desember 2008
Oh frábært
Já, ég var komin vel á leið með góða færslu áðan en svo fór allt í fokk. Punktar:
- Ég er ein heima, Edda og co fóru í mat til fagnaðar verkefnaskilum hjá Dodda og hópnum hans.
- Klóin á tölvuhleðslutæknu mínu er ónýtt en ég get samt notað snúru úr Eddu hleðslutæki til að hlaða tölvuna mína.
- Tölvan er aftur farin að vera leiðinleg eins og hún var í október, þykist ekki eiga neitt vinnsluminni til að vesenast í öllum þessum forritum (þ.e. safari og MSN)
- Ég kem heim á laugardaginn og ég er ekki viss um að ég hlakki neitt voða mikið til. Það snjóaði pínu hérna í gær og ég vil eiginlega ekki sjá meiri snjó en þessar lufsur. Mig grunar samt að Ísland sé á kafi í snjó í augnablikinu.
- Ég er hætt með titil leikinn, ég mun ennþá samt nota laga titla sem fyrirsögn, en ég nenni ekki þessu stiga dæmi. Ekki samt hætta að kommenta hjá mér! :P
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 30. nóvember 2008
Jólahjól
Eitthvað fór nú óskalistinn hérna til fjandans... ég kannski nenni að skrifa hann upp aftur hér, en hann er á weltreise síðunni og á facebook.
Lífið er alveg frábært þessadagana, já eða eiginlega bara svona ágætt. Ég er komin til DK og Inga er farin heim og jólin eru að koma. Ég er að vinna mig í gegnum einhver veikindi, fékk beinverki og ömurlegheit á föstudagskvöldið, fékk svo kláða og óþægindi í hálsinn í gær og nú hljóma ég eins og ég sé ofsa ofsa sorgmædd þegar ég tala :P Hrafnkeli er samt svo alveg sama, lætur mig samt lesa! Svo erum við systurnar og Hrafnkell búin að hlusta mikið á jólatónlist, krakkinn kann Jólahjól nánast áfram og afturábak og það skiptir engu máli hvort að hann sé búinn að heyra einhver lög áður, hann reynir samt að syngja með (maður heyrir svona ekkó af síðasta orðinu í setningunni). Hann er líka mjög duglegur að tala og tala mjög hátt líka.
Við Inga kíktum á jólaföndur í leikskólanum hans Hrafnkels þar sem við vorum kvattar til að detta í það (ja eða okkur var boðin alvöru jólaglögg) og við fengum fullt af æbleskiver! Svo horfðum við á krakkana og mömmurnar klippa út endalaust af hjörtum. Edda föndraði svo jólakött a la Hafralækjarskóli sem braut svona skemmtilega upp á stemminguna.
Svo fórum við líka í Tivoli þar sem var eiginlega bara mjög kalt en mjög jólalegt. Það var líka eiginlega frekar dýrt (eins og svo margt annað hérna) en við fórum samt í tvö tæki. Voða spennandi.
Ég fer svo heim á laugardaginn næsta, lendi í Keflavík 14:35. Nú er bara að redda sér fari til Reykjavíkur og fari heim, en það vonandi reddast. Svo vona ég að ég geti fundið mér einhverja smá vinnu á Húsavík, þó að ég sé mjög efins að það sé eitthvað að gera þar, og svo þarf ég að ákveða hvað ég ætla að gera eftir jól. Eins og er er ég með þrjár hugmyndir: finna vinnu heima á Íslandi, finna vinnu í Köben og finna svo herbergi einhverstaðar út í bæ, fara sem au pair fram á vor (ekki alveg búin að ákveða hvert ennþá). Fyrir utan þetta þá langar mig mest bara að leggjast undir sæng og hugsa ekkert um framtíðina, það er bara leiðindi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 19. nóvember 2008
óskalistinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 20. október 2008
Jæja, nú byrjar það...
Við fljúgum út í fyrramálið, gistum nú á hóteli í Keflavík :)
Héðan í frá verður það weltreise.bloggar.is (af einhverjum ástæðum fæ ég ekki hlekk dótið til að virka...)
Aftur: http://weltreise.bloggar.is :D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 13. október 2008
Where Is The Love
Fokk shit, vika í að við förum út. Já já, eftir viku verðum við Inga á leiðinni til Keflavíkur til að eyða síðustu nóttinni á fróninu á einhverju fínu hóteli, jájá, svona er það! Í gærkvöldi þegar ég var að fara að sofa hugsaði ég í eitt sekúndubrot ,,Vá nei, ég vil ekkert vera að fara núna, best að vera bara heima!" en það var fljótt að fara. Nú er ég bara spennt, þó svo að mér líki ekki alveg allar þessar sögur sem maður er búin að heyra frá Íslendingum sem eru erlendis.
Það sem ég er búin að vera að gera í sumarfríinu mínu er mest lítið. Ég er búin að:
- þrífa ísskápinn.
- Mæta á safnið til að tala við FER203 nemendur úr MA.
- Flokka bækurnar mínar og setja í tvo og hálfan kassa.
- laga svona aldeilis vel til í tölvunni minni, nú er hún bókstaflega eins og þegar ég keypti hana, office 2007 trial-ið er nothæft aftur, öll leikja triölin eru ónotuð, ég er búin að vera á fullu að redda mér hlutum eins og safari, itunes, msn, avast o.fl.
- brjóta saman fötin mín og gróflega búin að ákveða hvað ég ætla að taka með mér út.
Já og svo er Ragna orðin ljóshærð aftur, eða svo gott sem (sjá mynd) :) Nú þarf ég ekki að hafa áhyggjur af rótinni á ferðalaginu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Miðvikudagur, 1. október 2008
Working Class Hero
Jájá, hvenær bloggaði ég síðast? Surely var það fyrir helgi (eða um helgina)... En já, krónan er dauð og það eru álíka miklar líkur á því að ástandið lagist á næstunni og að Jón Már leifi almennilega busun í MA. Ég er orðin þreytt á þessu, það er alveg sama hversu mikið ég reyni að fylgjast með og horfa á fréttir og lesa í Fréttablaðinu þá er þetta of flókið til að ég skilji þetta til fulls, en nóg skil ég til að vita að það þýðir ekki að væla yfir því sem gerðist um helgina (fyrir utan það, þá er ekki eins og þetta sé bara að ske á Íslandi, margir bankar erlendis eru að ganga í gegnum það sama). Allt er þetta einhverjum ríkisbubbum, sem fá ekki nóg af fínu græjunum, að kenna. Fólk að eyða peningum sem það á ekki, taka lán hingað og þangað til að borga öll hin lánin og kaupa stórt hús, stóran bíl og sumarhús á Flórída.
Ég er búin að vera með pínu hnút í maganum síðustu daga. Hugsanlega er þetta bara út af því að það er farið að verða pínu stutt í ferðina, en ég held að mikill hluti af hnútnum sé út af peningum. Nú er krónan farin að vera svo lítils virði, þessi litli peningur sem maður hefur unnið sér inn í sumar mun duga skammt. Ég er farin að verða dauðhrædd um að þurfa að koma heim snemma, sem ég vil ekki (fyrir utan er ég búin að lofa Ingu að gefast ekki upp svo að hún geti face-að ömmu sína :P). Ég samt hugga mig við það að við erum ekki að fara að ferðast sem slíkt. Við ætlum að reyna að finna okkur íbúð í þessum þrem löndum sem við ætlum að dvelja lengur í, og það sem ég er búin að skoða á netinu þá ættum við amk að geta fundið eitthvað ódýrt í Manchester. Ég held að lykilatriðið sé að vera ekki mikið í höfuðborgunum. Og svo ætlum við að finna okkur einhverja vinnu, þannig að það dregur stórlega úr kostnaði. Svo í endann, þegar við ætlum að þvælast, þá ætlum við að reyna á CouchSurfing og lúlla frítt :)
Æji þetta reddast (gvuð, hvað ætli maður geti sagt það lengi...)...
Að lokum vil ég bara lýsa því yfir hvað ég þoli ekki snjóinn sem er kominn, það eina sem hægt er að gera í þessum agalega kulda er að klæða sig í hlýja sokka og skríða undir sæng. Mikið djöfull er ég fegin að vera ekki með vinnu :P
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)

Elva Guðmundsdóttir